Íþróttabandalag Reykjavíkur

SKAUTAHÖLLIN Í LAUGARDAL

MÚLAVEGUR 1, 104 REYKJAVÍK

[email protected]

SÍMI: 588 9705

Bókunarskilmálar

Vegna fjöldatakmarkanna viljum við bjóða öllum stórum og smáum, ungum sem öldruðum að bóka sér tíma á svellinu svo allir geti notið sín með 2 metra á milli. Hver bókaður tími er klst. og mælum við með að allir mæti 10 – 15 mín. áður en skautastundin byrjar, því þá eru skautarnir og hjálmurinn komin á áður en ykkar skautastund hefst.


Skilmálar 


Bóka verður tíma í gegnum bókunarkerfi SalesCloud. Tekið er á móti greiðslukortum og einnig er hægt að greiða með Kass appinu. Ekki er hægt að greiða með reiðufé. 


Bókun verður staðfest með tölvupósti skömmu eftir bókaðan tíma.



Afbókanir


1 – 6 dögum fyrir komu = 50% af heildarverði (miðað er við hádegi daginn fyrir bókaðan dag a.m.k.)


Engar endurgreiðslur eru á bókuðum tímum samdægurs. 



Seinkun á hópi


Allir viðskiptavinir eru beðnir um að virða bókaðan tíma. Seinkun veldur því að ekki er hægt að uppfylla þjónustuna að fullu en greiða verður fullt verð fyrir bókaða þjónustu. 



Almennir greiðsluskilmálar


Reikninga ber að greiða á eindaga. 

Allar upplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.



Share by: